17 ára söngkona lést af völdum heilablóðfalls

Karen Silva.
Karen Silva. Skjáskot/Instagram

Söngkonan Karen Silva, best þekkt fyrir þátttöku sína í brasilísku útgáfunni af The Voice Kids, lést í gær, fimmtudag. Hún var 17 ára gömul.

Silva, sem komst í undanúrslit í hæfileikakeppninni árið 2020, lést á São João Batista-sjúkrahúsinu í Volta Redonda aðeins örfáum dögum eftir að hafa fengið heilablóðfall.

„Karen var meira en bara efnilegur listamaður, hún var tákn um valdeflingu. Sérstaklega fyrir ungar svartar stúlkur sem fundu í henni innblástur og styrk til að láta drauma sína rætast,“ sagði kynningarfulltrúi söngkonunnar í samtali við The Mirror.

Silva var aðeins 12 ára gömul þegar hún heillaði dómara og áhorfendur upp úr skónum með kraftmikilli söngrödd sinni.



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að einbeita þér að sameiginlegum eignum og hlutum sem aðrir eiga. Stjórnsemi er góð en hún þarf að vera í hófi eins og annað.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Lotta Luxenburg
3
Colleen Hoover
4
Satu Rämö
5
Guðrún Guðlaugsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að einbeita þér að sameiginlegum eignum og hlutum sem aðrir eiga. Stjórnsemi er góð en hún þarf að vera í hófi eins og annað.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Lotta Luxenburg
3
Colleen Hoover
4
Satu Rämö
5
Guðrún Guðlaugsdóttir