Frumsýndi unga kærastann á rauða dreglinum

Nicola Coughlan.
Nicola Coughlan. Ljósmynd/AFP

Írska leikkonan Nicola Coughlan, best þekkt fyrir hlutverk sín í þáttaröðunum Derry Girls og Bridgerton, mætti ásamt kærasta sínum, leikaranum Jake Dunn, í veislu fyrir leikara og aðra sem tilnefndir eru til sjónvarpsverðlauna BAFTA í Lundúnum nú á dögunum. Þetta er í fyrsta sinn sem parið geng­ur hönd í hönd niður rauða dreg­il­inn.

Coughlan er tilnefnd til BAFTA-verðlauna fyrir leik sinn í þáttaröðinni Big Mood.

Coughlan, 38 ára, og Dunn, 24 ára, litu út fyrir að vera yfir sig ástfangin og tóku vart augun hvort af öðru allt kvöldið.

Samband þeirra hefur vakið mikla athygli, sérstaklega sökum aldursmunar, en 13 ár aðskilja parið.

Coughlan og Dunn eru sögð hafa byrjað að stinga nefjum saman síðastliðið sumar, en þau sáust meðal annars í innilegum faðmlögum á tónlistarhátíðinni All Points East í ágúst og hafa reglulega verið mynduð saman á röltinu í Lundúnum.

View this post on Instagram

A post shared by People Magazine (@people)

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að einbeita þér að sameiginlegum eignum og hlutum sem aðrir eiga. Stjórnsemi er góð en hún þarf að vera í hófi eins og annað.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Lotta Luxenburg
3
Colleen Hoover
4
Satu Rämö
5
Guðrún Guðlaugsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að einbeita þér að sameiginlegum eignum og hlutum sem aðrir eiga. Stjórnsemi er góð en hún þarf að vera í hófi eins og annað.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Lotta Luxenburg
3
Colleen Hoover
4
Satu Rämö
5
Guðrún Guðlaugsdóttir