Skemmtilegt myndskeið sem sýnir íslenskan lögreglumann spila körfubolta við ungan dreng á útivelli við Fellaskóla hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlasíðunni TikTok síðustu daga.
Eins og sést í myndskeiðinu þá skiptast ungi drengurinn og lögreglumaðurinn á við að sýna listir sínar er þeir keppast við að ná boltanum og skjóta á körfuna.
Hópur ungra drengja og annar lögreglumaður sjást standa á hliðarlínunni og fylgjast með leiknum og eru flestir með símann á lofti til að festa þetta skemmtilega augnablik á filmu.
Hátt í 20 þúsund manns hafa horft á myndbandið og tæplega 900 manns hafa lækað við það.
@namsiboi3 what the helly?
♬ original sound - SHOTTAWORLD🌍🩸