Alvarlega vannærður þegar hann lést

Gene Hackman og eiginkona hans, Betsy Arakawa, létust á heimili …
Gene Hackman og eiginkona hans, Betsy Arakawa, létust á heimili sínu í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. AFP/Hector Mata

Bandaríski leikarinn Gene Hackman var alvarlega vannærður þegar hann lést.

Hackman fannst látinn á heimili sínu ásamt eiginkonu sinni, píanóleikaranum Betsy Arawkawa, í febrúar síðastliðnum.

Þetta kemur fram í endanlegri krufningarskýrslu dánardómstjóra í Nýju-Mexíkó.

Niðurstöður eiturefnaprófana sýndu örlítið magn af ketónum í líkama Hackman, en magnið gefur til kynna að leikarinn hafi ekki nærst í dágóðan tíma.

Bandaríski stórleikarinn, sem var 95 ára og með hjartasjúkdóm og Alzheimers-sjúkdóminn, dó af náttúrulegum orsökum, líklega um viku á eftir eiginkonu sinni, og gerði sér, samkvæmt sérfræðingum, sökum heilabilunar, ekki grein fyrir því að eiginkona hans væri látin.

Arakawa lést af völdum hantaveiru, sjaldgæfs sjúkdóms sem berst úr nagdýrum í menn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Allt sem menn gjöra hefur sínar afleiðingar og reyndar aðgerðaleysi líka. Með það að leiðarljósi muntu ávinna þér virðingu samstarfsmanna þinna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Satu Rämö
3
Sigrún Elíasdóttir
4
Viveca Sten
5
Nanna Rögnvaldardóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Allt sem menn gjöra hefur sínar afleiðingar og reyndar aðgerðaleysi líka. Með það að leiðarljósi muntu ávinna þér virðingu samstarfsmanna þinna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Satu Rämö
3
Sigrún Elíasdóttir
4
Viveca Sten
5
Nanna Rögnvaldardóttir