Harry Potter-stjarna eignaðist sitt annað barn

Rupert Grint.
Rupert Grint. Skjáskot/Instagram

Leikarinn Rupert Grint, einna þekktastur fyrir hlutverk sitt sem hinn rauðhærði Ron Weasley í Harry Potter-seríunni sívinsælu, varð faðir í annað sinn á dögunum. Grint eignaðist dóttur með kærustu sinni, leikkonunni Georgia Groome.

Fyrir á parið fimm ára gamla dóttur, Wednesday.

Grint, 36 ára, tilkynnti um fæðingu barnsins á Instagram-síðu sinni á sunnudag, í færslu sem sýnir stúlkubarnið klætt í hvíta samfellu með nafni sínu, en stúlkan hlaut nafnið Goldie.

„Litla leynibarnið afhjúpað. Við kynnum til sögunnar Goldie G. Grint,“ skrifar leikarinn við færsluna.

Grint og Groomer hafa verið par frá árinu 2011.

View this post on Instagram

A post shared by Rupert Grint (@rupertgrint)

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Allt sem menn gjöra hefur sínar afleiðingar og reyndar aðgerðaleysi líka. Með það að leiðarljósi muntu ávinna þér virðingu samstarfsmanna þinna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Satu Rämö
3
Sigrún Elíasdóttir
4
Viveca Sten
5
Nanna Rögnvaldardóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Allt sem menn gjöra hefur sínar afleiðingar og reyndar aðgerðaleysi líka. Með það að leiðarljósi muntu ávinna þér virðingu samstarfsmanna þinna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Satu Rämö
3
Sigrún Elíasdóttir
4
Viveca Sten
5
Nanna Rögnvaldardóttir