Sænski leikstjórinn Loran Batti kemur til Reykjavíkur á vegum RIFF-kvikmyndahátíðarinnar í næstu viku. Þá verður skólahópum boðið að sjá margverðlaunuðu mynd hans, G - 21 fra Gottsunda, sem fjallar um glæpagengi í Uppsölum í Svíþjóð.
Auk þess verður sýning fyrir almenning þar sem leikstjórinn tekur þátt í pallborði.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá RIFF.
Þar segir að hinn þrítugi Batti hafi alist upp í Gottsunda, úthverfi Uppsalaborgar í Svíþjóð, sem oft sé lýst sem „no-go zone“ vegna ofbeldis, eiturlyfjaneyslu og skipulagðrar glæpastarfsemi.
Myndin var tekin upp á fimm ára tímabili og er samsett úr 21 senu sem varpa ljósi á líf á jaðri samfélagsins og þá flóknu þætti sem draga ungt fólk inn í heim gengja.
Myndin var tilnefnd til þriggja Gullbagga í Svíþjóð í ár og var Loran Batti verðlaunaður sem besti nýliðinn. Myndin var jafnframt valin besta myndin af dómnefnd unga fólksins á RIFF í fyrra og fékk New Wave verðlaunin á heildarmyndahátíðinni CPH DOX í fyrra.
Haldnar verða skólasýningar á myndinni í Sambíóunum Álfabakka í næstu viku. Fimmtudaginn 8. maí, kl. 17.30 fer fram sýning í Háskólabíó þar sem almenningi býðst að sjá myndina.