Fékk enga fjárhagslega aðstoð frá pabba

Phoebe Gates dóttir auðkýfingsins Bill Gates langaði að sanna sig …
Phoebe Gates dóttir auðkýfingsins Bill Gates langaði að sanna sig með stofnun fyrirtækisins Phia. Skjáskot/Instagram

Phoebe Gates, dóttir auðkýfingsins og stofnanda Microsoft, Bill Gates, fékk enga fjárhagslega aðstoð frá föður sínum þegar hún stofnaði fyrirtækið sitt.

Bill sagði í viðtali við New York Times á fimmtudag að hann óttaðist að dóttir hans myndi koma og biðja hann um peninga þegar hún setti á legg vefsíðu með frumkvöðlinum Sophiu Kianni. „Ó, Guð.“ Eru orð sem flugu gegnum höfuðið á honum. Hann sagðist þó myndu hafa stutt dóttur sína en að hún hafi „lukkulega“ beðið sig um aðstoð.

Phoebe útskrifaðist úr líffræði við Stanford-háskóla í Kaliforníu árið 2024 og opnaði vefsíðuna Phia í síðustu viku, en síðan notar gervigreind til að aðstoða sjálfbæra kaupendur við að finna bestu tilboðin.

Þrátt fyrir að hafa veitt dóttur sinni ráðleggingar varðandi reksturinn þá hélt hann sig að mestu til hlés því hann vildi að hún „gerði eigin mistök og læri af þeim“. Að sama skapi langaði Phoebe til að sanna sig. 

Page Six

Bill Gates vill að dóttir hans finni sig á eigin …
Bill Gates vill að dóttir hans finni sig á eigin spýtur í viðskiptalífinu. Arun SANKAR / AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Allt sem menn gjöra hefur sínar afleiðingar og reyndar aðgerðaleysi líka. Með það að leiðarljósi muntu ávinna þér virðingu samstarfsmanna þinna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Satu Rämö
3
Sigrún Elíasdóttir
4
Viveca Sten
5
Nanna Rögnvaldardóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Allt sem menn gjöra hefur sínar afleiðingar og reyndar aðgerðaleysi líka. Með það að leiðarljósi muntu ávinna þér virðingu samstarfsmanna þinna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Satu Rämö
3
Sigrún Elíasdóttir
4
Viveca Sten
5
Nanna Rögnvaldardóttir