Airyn De Niro, eitt af sjö börnum verðlaunaleikarans Robert De Niro, kom út úr skápnum sem trans kona í viðtali við veftímaritið Them á þriðjudag.
Airyn, sem er 29 ára gömul, er dóttir leikarans og fyrrverandi kærustu hans, fyrirsætunnar og leikkonunnar Toukie Smith.
De Niro og Smith voru saman á árunum 1988 til 1996 og eignuðust tvíbura með aðstoð staðgöngumóður árið 1995.
Airyn, sem áður hét Aaron Kendrick, byrjaði í estrógenmeðferð í nóvember síðastliðnum og ákvað að koma út úr skápnum eftir að götuljósmyndari náði myndum af henni í hælaskóm nýverið.
De Niro á sjö börn á aldursbilinu 2 til 57 ára.
Börn þó nokkurra Hollywood-stjarna hafa komið út úr skápnum sem trans á síðustu árum og má þar nefna miðjubarn Jennifer Garner og Ben Affleck, dætur leikkvennanna Charlize Theron, Jamie Lee Curtis, Naomi Watts og son Cynthiu Nixon.