Tónlistarmaðurinn Måns Zelmerlöw viðurkennir í nýlegu viðtali við sænska dagblaðið Göteborgs-Posten að hafa notað kókaín.
„Ég hef verið á móti eiturlyfjum alla mína ævi, en fyrir um tveimur árum birtist efnið í tónleikaferðalagarútunni. Allir hinir voru að nota efnið. Það er alvanalegt í mínum bransa, þannig að það varð erfitt að prófa ekki,“ segir Måns Zelmerlöw í viðtalinu og fjallar í framhaldinu um fíknivanda sinn. Hann tekur fram að hann hafi fengið aðstoð og sé hættur allri neyslu í dag.
Viðtalið veitti Måns Zelmerlöw eftir að Ciara Zelmerlöw tilkynnti skilnað þeirra hjóna á samfélagsmiðlum og talaði opinskátt um fíkniefnaneyslu hans. Stuttu síðar aflýsti Måns Zelmerlöw fyrirhuguðum tónleikum vegna fjölskylduaðstæðna. Hann er hvað frægastur fyrir að hafa sigrað í Eurovision árið 2015 með flutningi sínum á laginu „Heroes“.