Bill Gates gefur 99% af eftirstandandi auðæfum

Bill Gates heldur erindi á viðburði í Nýju-Delí í mars.
Bill Gates heldur erindi á viðburði í Nýju-Delí í mars. Arun SANKAR / AFP

Auðkýfingurinn og stofnandi Microsoft, Bill Gates, hyggst gefa 99% af eftirstandandi auðæfum sínum til Gates Foundation en stofnunin er metin á 107 milljarða dali í dag.

Loforð Gates er sögð meðal stærstu góðgerðargjafa sem nokkru sinni hafa verið gefnar stofnuninni, þar með talið sögulegt framlag iðnrekenda á borð við John D. Rockefeller og Andrew Carnegie – þegar upphæðirnar hafa verið færðar á núvirði.

Aðeins loforð fjárfestisins Warren Buffet um að gefa auðæfi sín gæti hafa verið stærra framlag, en Forbes metur auðæfin á 160 milljarða dali.

Gates Foundation var stofnað árið 2000 af Bill og Melindu French Gates og gegnir mikilvægu hlutverki í mótun alþjóðlegrar heilbrigðisstefnu og hefur skapað sérstakan sess með samstarfi við fyrirtæki til að draga úr kostnaði við læknismeðferðir svo lág- og meðaltekjulönd hafi efni á þeim. 

Háleit markmið

Gates sagði sjálfur að hann, líkt og hver annar borgari, hefði val um hvernig hann verði fjármunum sem hann hefði sjálfur unnið til og hefur ákveðið að gera allt sem í sínu valdi stendur til að draga úr barnadauða.

Verðmætasti mælikvarði stofnunarinnar er lækkun barnadauða – af orsökum sem hægt er að koma í veg fyrir – um helming á milli áranna 2000 og 2020, samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum. Þótt stofnunin vilji ekki eigna sér heiðurinn telur hún að þátttaka hennar og forysta í ýmsum verkefnum hafi stuðlað að þessum árangri.

Stefnt er að lokun Gates Foundation árið 2045 og er gjöf Gates, sem sett verður í stofnunina smám saman, til þess fallin að á næstu tuttugu árum geti stofnunin varið 200 milljörðum dala umfram það sem hún á nú þegar.

Meðal markmiða stofnunarinnar á þessu tímabili eru: Að útrýma mænusótt, ná stjórn á öðrum banvænum sjúkdómum eins og malaríu og draga úr vannæringu sem gerir börn viðkvæmari fyrir öðrum sjúkdómum. 

Page Six

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er engin ástæða til þess að láta hugfallast þótt hlutirnir gangi ekki nákvæmlega eins og þú helst vilt. Sumir þurfa greinilega á afskiptum þínum að halda.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Satu Rämö
2
Torill Thorup
3
Sigrún Elíasdóttir
4
Viveca Sten
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er engin ástæða til þess að láta hugfallast þótt hlutirnir gangi ekki nákvæmlega eins og þú helst vilt. Sumir þurfa greinilega á afskiptum þínum að halda.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Satu Rämö
2
Torill Thorup
3
Sigrún Elíasdóttir
4
Viveca Sten
5
Birgitta H. Halldórsdóttir