Danir falla fyrir frumraun Einars

Einar Lövdahl
Einar Lövdahl

Danska bókaforlagið Gyldendal hefur ákveðið að gefa út skáldsöguna Gegnumtrekkeftir Einar Lövdahl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umboðsskrifstofunni Reykjavík Literary Agency, en þar á bæ segjast starfsmenn finna fyrir miklum áhuga erlendis á bókinni. Þegar hefur verið samið um ungverska útgáfu við forlagið Czer og útgáfu á þýska málsvæðinu við svissneska forlagið Kein & Aber, sem nýtur, að sögn, mikilla virðingar fyrir framlag sitt til fagurbókmennta.

„Eva Magelund Krarup, ritstjóri hjá Gyldendal, segir mikla ánægju ríkja hjá forlaginu og að sjaldan hafi ríkt annar eins einhugur innan ritstjórnarinnar um kaup á skáldsögu eftir höfund sem sé að stíga sín fyrstu skref. Í Gegnumtrekkisé lýst á áhrifamikinn hátt stöðu ungs manns sem skortir fyrirmyndir í lífinu og þarf að marka sér eigin spor án stuðningsnets. Einari takist einstaklega vel að lýsa hlutskipti og áskorunum aðalpersónunnar Asks og Krarup bætir við að Gegnumtrekkursé mikilvægt framlag í slíka umræðu.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert hrókur alls fagnaðar og allir vilja vera nálægt þér. Sestu niður, farðu í gegn um eignir og skuldir og settu þér svo áætlun til að fara eftir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Satu Rämö
3
Sigrún Elíasdóttir
4
Lotta Luxenburg
5
Jónína Leósdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert hrókur alls fagnaðar og allir vilja vera nálægt þér. Sestu niður, farðu í gegn um eignir og skuldir og settu þér svo áætlun til að fara eftir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Satu Rämö
3
Sigrún Elíasdóttir
4
Lotta Luxenburg
5
Jónína Leósdóttir