Útskriftarsýning nema í samtímadansi við Listaháskóla Íslands verður frumsýnd í Black Box-rými Listaháskóla Íslands á Laugarnesvegi 91, en gengið er inn neðan við byggingu um inngang næst Sæbraut. Í tilkynningu frá LHÍ kemur fram að sýnd verði tvö verk, Divine eftir Höllu Ólafsdóttur og Disaster Resilience of the Water sem Sandrine Cassini samdi sérstaklega fyrir hópinn.
„Það er óhætt að segja að fjölbreytnin í bakgrunni dansaranna og sú nálgun sem námið felur í sér skapar ríka og lífræna heild,“ er haft eftir Katrínu Gunnarsdóttur, dósent og fagstjóra samtímadansbrautar við LHÍ, í tilkynningunni. Þar bendir hún á að námið sé alþjóðlegt, sem endurspeglist í hópi útskriftarnema sem komi m.a. frá Finnlandi, Eistlandi og Íslandi.
„Það er einnig gaman að segja frá því að aldrei hefur útskriftarhópurinn haft jafn hátt hlutfall af karlkyns dönsurum, eða þrjá af tíu. Þessi sýning markar mikilvægt augnablik í lífi þessara ungu listamanna – lok námsferils og innganga í fagheim danslistarinnar. Þau eru dansstjörnur framtíðarinnar og við fáum að fylgjast með þeim hrífa okkur með sér.“
Útskriftarnemar ársins eru Andrea María Ólafsdóttir, Bertine Bertelsen Fadnes, Elida Angvik Hovdar, Elsa Kamöy Furuseth, Jaakko Juhani Fagerberg, Leevi Alpo Antinpoika Mettinen, Mari Ann Valkna, María Kristín Jóhannsdóttir, Rebekka Guðmundsdóttir og Torfi Tómasson.
Sýndar verða alls sex sýningar dagana 9.-16. maí. Aðgangur er ókeypis en bóka þarf miða á tix.is.