„Þarna inni mun fólk upplifa þrennt“

Þrautseigir VÆB-bræður kepptu einnig í Söngvakeppninni á síðasta ári.
Þrautseigir VÆB-bræður kepptu einnig í Söngvakeppninni á síðasta ári. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tónlistartvíeykið VÆB, sem skipað er þeim Hálfdáni Helga og Matthíasi Davíð Matthíassyni, hefur opnað sérstaka verslun í Kringlunni í tilefni þátttöku þeirra fyrir Íslands hönd í Eurovision. Verslunin opnaði formlega á miðvikudaginn og verður opin um helgina, laugardag og sunnudag, frá klukkan 12 til 16.

Í versluninni má finna fjölbreyttan varning tengdan sveitinni, þar á meðal vinsælu VÆB-gallana sem notið hafa mikilla vinsælda meðal ungs fólks, auk húfa, derhúfa og fleiri muna í sama stíl. Bræðurnir segjast spenntir fyrir viðtökunum.

„Þarna inni mun fólk upplifa þrennt: virðingu, æðruleysi og bullandi stemmningu. There you go,“ segja þeir léttir.

VÆB stígur á stóra svið Eurovision í Basel, Sviss, næstkomandi þriðjudagskvöld, þar sem Ísland keppir fyrst allra atriða í undanúrslitum keppninnar. Blaðamenn mbl.is verða á staðnum og koma til með að fylgjast grannt með undirbúningi og framgöngu íslenska hópsins.

Það var mikil stemning þegar verslunin var opnuð á miðvikudaginn.
Það var mikil stemning þegar verslunin var opnuð á miðvikudaginn. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú bókstaflega ljómar þessa dagana og vekur eftirtekt hvar sem þú kemur. Vandaðu valið á fólki því á því veltur sálarheill þín og sjálfstæði.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Lotta Luxenburg
3
Colleen Hoover
4
Satu Rämö
5
Guðrún Guðlaugsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú bókstaflega ljómar þessa dagana og vekur eftirtekt hvar sem þú kemur. Vandaðu valið á fólki því á því veltur sálarheill þín og sjálfstæði.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Lotta Luxenburg
3
Colleen Hoover
4
Satu Rämö
5
Guðrún Guðlaugsdóttir