Bókinni skilað hálfri öld of seint

Jón úr Vör mun hafa afgreitt lánþegann þegar bókin var …
Jón úr Vör mun hafa afgreitt lánþegann þegar bókin var tekin að láni. Samsett mynd

Bók sem lánuð var út af bókasafni Kópavogs fyrir rúmlega hálfri öld síðan skilaði sér loksins á dögunum í sektlausri viku. Jón úr Vör mun hafa afgreitt lánþegann þegar bókin var tekin út.

Bókasafnið greinir frá því á Facebook að barnabókin Kata í Ameríku eftir Astrid Lindgren haf skilað sér vikunnu eftir 56 ár í útláni. Bókinni átti að skila 2. júní 1969.

Bókinni átti að skila 2. júní 1969.
Bókinni átti að skila 2. júní 1969. Ljósmynd/Kópavogur

Er þetta lengsta útlán í sögu Bókasafns Kópavogs, að sögn, en í færslunni segir að lánþeginn hafi verið að taka til á háaloftinu þegar bókin kom í leitirnar og auðvitað hafi verið við hæfi að nýta sektarlausu vikuna sem er í gangi 5.-11. maí að tilefni af 70 ára afmæli Kópavogsbæjar.

Það mun hafa verið skáldið Jón úr Vör sem afgreiddi lánþegann þegar bókin var tekin að láni árið 1969 en þá var bókasafnið aðeisn starfrækt í litlu herbergi í Kársnesskóla.

Jón var fyrsti bæjarbókavörður Kópavogsbæjar, en bókasafnið fagnar 72 ára afmæli á árinu.

Fréttin hefur verið uppfærð: Í upprunalegri útgáfu fréttar hafði blaðamaður farið orðavillt og sagt að bókinni hafi verið skilað hálfum áratugi of seint. Hið rétta er að henni var skilað hálfri öld of seint

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert hrókur alls fagnaðar og allir vilja vera nálægt þér. Sestu niður, farðu í gegn um eignir og skuldir og settu þér svo áætlun til að fara eftir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Lotta Luxenburg
3
Satu Rämö
4
Sigrún Elíasdóttir
5
Guðrún Guðlaugsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert hrókur alls fagnaðar og allir vilja vera nálægt þér. Sestu niður, farðu í gegn um eignir og skuldir og settu þér svo áætlun til að fara eftir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Lotta Luxenburg
3
Satu Rämö
4
Sigrún Elíasdóttir
5
Guðrún Guðlaugsdóttir