Myndir: Líf og fjör í Smáralind á 70 ára afmæli Kópavogs

Margir voru mættir í Smáralindina fyrr í dag til að …
Margir voru mættir í Smáralindina fyrr í dag til að fagna 70 ára afmæli Kópavogsbæjar. mbl.is/Birta

Gífurleg stemmning var í Smáralind fyrr í dag þar sem finna mátti köku, kór og blöðrulistamenn. Um er að ræða viðburð á vegum Kópavogsbæjar sem fagnar 70 ára afmæli sínu á morgun.

Á meðfylgjandi myndum má sjá Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs, ásamt bæjarfulltrúum gefa gestum og gangandi ljúffenga afmælisköku í verslunarmiðstöðinni.

Tóku forskot á sæluna

Í samtali við mbl.is segir Ásdís Kristjánsdóttir gífurlega stemmningu hafa verið í Smáralindinni. Margir hafi verið saman komnir til að gæla sér á köku og njóta viðburðarins. 

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og bæjarfulltrúar skáru kökuna góðu og gáfu …
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og bæjarfulltrúar skáru kökuna góðu og gáfu gestum. mbl.is/Birta

Hún segir hápunkt helgarinnar vera á morgun, á sjálfum afmælisdegi bæjarins. 

„En við vildum vera í Smáralindinni í dag og taka smá forskot á sæluna og bjóða upp á afmælisköku. Hún bragðaðist mjög vel og það voru allir mjög ánægðir með þetta.“

mbl.is/Birta

Fjölbreytt dagskrá framundan

Dagskrá afmælishátíðarinnar byrjaði í gær er boðið var upp á afmælisköku í félagsmiðstöðvum eldri borgara.

Samkór Kópavogs var að sjálfsögðu mættur og tók nokkur lög.
Samkór Kópavogs var að sjálfsögðu mættur og tók nokkur lög. mbl.is/Birta

Að því er segir á vef Kópavogsbæjar var einnig haldin uppskeruhátíð Barnamenningarhátíðar í dag þar sem smiðjur og fjör fara fram í Bókasafni Kópavogs og Náttúrufræðistofu og mun sú hátíð standa til klukkan 17.

Blöðrulistamenn skemmtu lýðnum.
Blöðrulistamenn skemmtu lýðnum. mbl.is/Birta

Uppskeruhátíðin mun svo halda áfram frá klukkan 12-17 á morgun þar sem boðið er upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.

Þá mun að sögn Ásdísar forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og eigimaður hennar, Björn Skúlason, fagna með kópavogsbúum á morgun. 

Eins og sjá má var afmæliskakan af stærri gerðinni.
Eins og sjá má var afmæliskakan af stærri gerðinni. mbl.is/Birta
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert hrókur alls fagnaðar og allir vilja vera nálægt þér. Sestu niður, farðu í gegn um eignir og skuldir og settu þér svo áætlun til að fara eftir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Lotta Luxenburg
3
Satu Rämö
4
Sigrún Elíasdóttir
5
Guðrún Guðlaugsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert hrókur alls fagnaðar og allir vilja vera nálægt þér. Sestu niður, farðu í gegn um eignir og skuldir og settu þér svo áætlun til að fara eftir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Lotta Luxenburg
3
Satu Rämö
4
Sigrún Elíasdóttir
5
Guðrún Guðlaugsdóttir