Trúa því að VÆB muni sigra

Stemningin í Basel er rafmögnuð um þessar mundir en Eurovision fer fram í svissnesku borginni næstu daga.

Þúsundir aðdáenda streyma að St. Jakobshalle, sem rúmar 12.400 manns, þar sem tvennum undanúrslitum verður hleypt af stokkunum á þriðjudag og fimmtudag og sjálft úrslitakvöldið fer fram næsta laugardag.

Blaðamenn mbl.is eru komnir á staðinn og munu flytja lesendum helstu fréttir af því sem fram fer næstu daga.

Fyrsta lag kvöldsins verður íslenskt

Ísland fær það einstaka hlutskipti að opna fyrri undankeppnina á þriðjudags­­kvöldið kl. 19 að íslenskum tíma, þegar VÆB-bræðurnir flytja vinsæla smellinn „Róa“. Þeir setja þannig tóninn fyrir 15 keppnislög kvöldsins.

Bræðurnir unnu Söngvakeppni sjónvarpsins fyrr á árinu og sögðu í tilkynningu á samfélags­miðlum: „We are Væb and we're competing for Iceland in Eurovision … Let's go!“

Væb-æðið ekki bara heima

Vinsældir VÆB-bræðranna hafa náð óvæntum hæðum heima fyrir – svo mjög að stór hluti íslenskra barna klæddi sig upp sem bræðurnir á öskudaginn.

Nú virðist æði þeirra hins vegar hafa náð alla leið til Basel en laglínur lagsins „Róa“ má heyra víða um borgina og íslenskir fánar blakta við hún fyrir utan Eurovision Village, þar sem tónleikar og sjónvarps­útsendingar fara fram alla vikuna.

VÆB. Þeir Matthías og Hálfdán sigruðu í Söngvakeppninni og hlakka …
VÆB. Þeir Matthías og Hálfdán sigruðu í Söngvakeppninni og hlakka til að stíga á svið í Basel í Sviss. Ljósmynd/Mummi Lú
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er eins gott að lesa smáa letrið í öllum samningum áður en þeir eru undirritaðir. Haltu áfram því þú munt verða stoltur af þeim árangri sem þú nærð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
3
Moa Herngren
4
Torill Thorup
5
Lucinda Riley
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er eins gott að lesa smáa letrið í öllum samningum áður en þeir eru undirritaðir. Haltu áfram því þú munt verða stoltur af þeim árangri sem þú nærð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
3
Moa Herngren
4
Torill Thorup
5
Lucinda Riley