Bara spenntir og ekkert stressaðir

Nokkrir klukkutímar eru í að Ísland opni fyrra undanúrslitakvöld Eurovision í St. Jakobshalle – en bræðurnir Hálfdán Helgi og Matthías Davíð segjast rólegir og fullir tilhlökkunar eftir síðustu sviðsæfinguna.

Spenningur en ekkert stress

Aðspurðir um magatilfinninguna segja þeir hana góða:

Mjög góð, við erum spenntir. Þetta er mjög gaman. Við vorum að klára æfinguna og allt.“
„Ekki neitt stressaðir, bara peppaðir. Þetta verður gaman og ég hef trú á þessu.“

Hvert er planið næstu klukkutímana?

„Hárþvottur, smink, hár og svo hvíla.“

Hvað myndu VÆB-bræðurnir fyrir tíu árum segja núna?

„Þeir myndu örugglega bara vera eitthvað: Yo, þetta er crazy. Vá sæll, Eurovision – ó mæ gad, stemning!“

VÆB-búðin ennþá opin

Loka­skilaboð til fólksins heima í stofu eru einföld:

„VÆB-búðin er opin til sex í kvöld ef þið viljið kaupa gleraugu. Nei, ég er að djóka. Bara vonandi njóta allir. Fáið ykkur popp og setjist niður. Þetta verður veisla, “ segir Matthías.

Ég vona að þið skemmtið ykkur, það er draumurinn minn,“ bætir Hálfdán Helgi við.

mbl.is fylgist áfram með beinu útsendingunni í kvöld þegar „Róa“ fær að hljóma fyrst allra laga í undanúrslitunum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Stundum býstu hreinlega við of miklu.Vinur gefur þér eitthvað með bros á vör og þú vilt meira. Gættu þess að lofa ekki of miklu fyrir framtíðina.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Moa Herngren
4
Lucinda Riley
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Stundum býstu hreinlega við of miklu.Vinur gefur þér eitthvað með bros á vör og þú vilt meira. Gættu þess að lofa ekki of miklu fyrir framtíðina.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Moa Herngren
4
Lucinda Riley