Ástralski tónlistarmaðurinn Go-Jo, oft kallaður Milkshake Man eftir smellinum sem hann flutti í Eurovision, steig á svið í gærkvöldi þegar síðara undanúrslitakvöld Eurovision fór fram.
Þar mætti hann 15 öðrum atriðum og til mikillar furðu áhorfenda lenti hann ekki í tíu efstu sætum kvöldsins. Hann mætir því ekki VÆB-bræðrum á laugardaginn eins og til stóð.
mbl.is ræddi við Go-Jo á dögunum þar sem hann var meðal annars spurður út hversu mörg rokkstig (e. aura-points) honum finnst hann hafa á skalanum 1–100.
Svaraði Go-Jo brosandi:
„Ég er í kringum 79 núna - það er líklega dressið sem heldur mér þar, ég er frekar þreyttur.“
Allra besta Eurovision-lagið að hans mati er ódauðlega finnska rokkbomban „Hard Rock Hallelujah“:
„Ég myndi elska að flytja það einn daginn,“ segir hann, en viðurkennir að þungarokk sé „sá eini flokkur sem ég á erfitt með“.
Go-Jo færir íslenskum áhorfendum hlýjar kveðjur:
„Landið er í efstu sætum á ferðalistanum mínum og ég get ekki beðið eftir að heimsækja ykkur. Ég elska líka framlagið ykkar í ár - VÆB-strákarnir eru svo skemmtilegir og fyndnir.“
Þrátt fyrir að Eurovision-ferðalagi Go-jo sé lokið í bili hefur honum klárlega tekist að eignast fjölda nýrra aðdáenda og hver veit nema við sjáum hann á Íslandi fljótlega?
mbl.is fylgist áfram með ævintýrum Eurovision héðan frá Basel.