Uppfyllti lokaósk eiginkonu sinnar

Les ásamt brúðhjónunum.
Les ásamt brúðhjónunum. Skjáskot/Instagram

Eldri maður að nafni Les stóð við loforð sem hann gaf eiginkonu sinni, Betty, skömmu áður en hún lést, en Betty vildi ólm vera hluti af brúðkaupsdegi barnabarns þeirra, brúðgumans, Tom, og gerði Les því allt sem í hans valdi stóð til að fullnægja lokaósk eiginkonu sinnar heitinnar.

Les stillti sér upp fyrir myndatöku ásamt brúðhjónunum, Tom og Alice, og dró fram fallega portrett-mynd af Betty sem hann lagði yfir hjartastað um leið og ljósmyndarinn smellti af, og með því fékk Betty lokaósk sína uppfyllta.

Myndskeið af þessu fallega og tilfinningaþrungna augnabliki hefur farið líkt og eldur í sinu á samfélagsmiðlum, en ljósmyndarinn sem fangaði brúðkaupsdaginn deildi því á Instagram-síðu sinni nýverið.

Já, myndskeiðið sýnir og sannar að sönn ást lifir að eilífu!

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu ekki hugfallast þótt endar nái ekki saman heldur farðu yfir öll reikningsyfirlit og þá sérðu að peningarnir hafa ekki farið í vitleysu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
3
Moa Herngren
4
Torill Thorup
5
Lucinda Riley
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu ekki hugfallast þótt endar nái ekki saman heldur farðu yfir öll reikningsyfirlit og þá sérðu að peningarnir hafa ekki farið í vitleysu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
3
Moa Herngren
4
Torill Thorup
5
Lucinda Riley