Birgitta syngur nýjasta sigurlag Eurovision og slær í gegn

Birgitta Ólafsdóttir var ein af keppendum Söngvakeppninnar í ár sem …
Birgitta Ólafsdóttir var ein af keppendum Söngvakeppninnar í ár sem komst ekki áfram.

Tónlistarkonan Birgitta Ólafsdóttir, einnig þekkt undir listamannsnafninu BIRGO, hefur vakið athygli á TikTok undanfarið eftir að hún tók nýjasta sigurlag Eurovision, Wasted Love eftir austurríska söngvarann Johannes Pietsch, sem þekkist betur undir listamannsnafninu JJ. Wasted Love tryggði Austurríki sigur í Basel eftir að hafa fengið 357 stig en það markar þar með þriðja sigur landsins í sögu keppninnar. 

„Þú syngur þetta betur en JJ!“

Birgitta, sem vakti mikla athygli í söngvakeppninni núna í janúar, flytur lagið af krafti og fer upp á allra hæstu nóturnar. Netverjar keppast við að lofa Birgittu í athugasemdum:

„Þú syngur þetta betur en JJ!“

„Birgitta á stóra sviðið í Vín 2026!“ 

Hér fyrir neðan má horfa á TikTok-myndbandið sem um ræðir.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er eins gott að lesa smáa letrið í öllum samningum áður en þeir eru undirritaðir. Haltu áfram því þú munt verða stoltur af þeim árangri sem þú nærð.
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er eins gott að lesa smáa letrið í öllum samningum áður en þeir eru undirritaðir. Haltu áfram því þú munt verða stoltur af þeim árangri sem þú nærð.