Krefjast tíu ára dóms fyrir Kardashian-ránið

Kim ásamt móður sinni Kris Jenner..
Kim ásamt móður sinni Kris Jenner.. AFP/Leo Vignal

Saksóknarar í Frakklandi hafa farið fram á tíu ára dóm yfir aðalsakborningnum í vopnuðu ráni sem framið í París árið 2016 þar sem bandaríska raunveruleikastjarnan Kim Kardashian var fórnarlambið. 

Segist ekki hafa verið höfuðpaurinn 

Aomar Ait Khedache er aðalsakborningur málsins. Hann hefur játað þáttöku í ráninu en þvertekur fyrir að hafa verið höfuðpaurinn. Þeir sem eru grunaðir í málinu eru flestir á sjötugs- og áttræðisaldri. Áætlað er að úrskurður verði kveðinn upp í málinu á föstudag. 

„Af þeim tíu sem eru ákærðir lýsa átta yfir sakleysi sínu. Engu að síður tel ég þá alla vera seka,“ sagði Anne-Dominique Merville saksóknari í dómsal í morgun. 

Kardashian bar vitni í málinu í síðustu viku. Stjarnan sagðist hafa óttast um líf sitt kvöldið örlagaríka. Mennirnir réðust grímuklæddir inn á hótelherbergi hennar, bundu saman hendur hennar og fætur, límdu fyrir munn hennar og komu henni fyrir í baðkari á meðan þeir létu greipar sópa í hótelherberginu og stálu verðmætum skartgripum.

Kim Kardashian bar vitni í dómsal í síðustu viku.
Kim Kardashian bar vitni í dómsal í síðustu viku. AFP/Benoit Peyrucq

Ránsfengurinn er metinn á 10 milljónir evra, um 1,3 milljarða íslenskra króna. Meirihluti þýfsins hefur aldrei fundist.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Stundum býstu hreinlega við of miklu.Vinur gefur þér eitthvað með bros á vör og þú vilt meira. Gættu þess að lofa ekki of miklu fyrir framtíðina.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Moa Herngren
4
Lucinda Riley
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Stundum býstu hreinlega við of miklu.Vinur gefur þér eitthvað með bros á vör og þú vilt meira. Gættu þess að lofa ekki of miklu fyrir framtíðina.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Moa Herngren
4
Lucinda Riley