Dómur væntanlegur vegna Kardashian-ránsins

Kim Kardashian yfirgefur dómhúsið með móður sinni Kris Jenner.
Kim Kardashian yfirgefur dómhúsið með móður sinni Kris Jenner. AFP/Alain Jocard

Dómur er væntanlegur í kvöld vegna Kardashian-ránsins, vopnaðs ráns sem framið var í Par­ís árið 2016 þar sem banda­ríska raun­veru­leika­stjarn­an Kim Kar­dashi­an var fórn­ar­lambið.

Níu karlar og ein kona voru ákærð fyrir ránið. Þar af er farið fram á 10 ára fangelsisvist, þyngsta mögulega dóminn í Frakklandi fyrir slíkt afbrot, yfir fjórum körlum sem sakaðir eru um að hafa framið sjálft ránið.

Ráns­feng­ur­inn er met­inn á um 1,3 millj­arða ís­lenskra króna og hefur meiri­hluti þýfs­ins aldrei fund­ist.

„Ég fyrirgef þér“

Einn þessara fjögurra manna er Aom­ar Ait Khedache, aðalsak­born­ing­ur máls­ins sem er einnig sakaður um að hafa skipulagt ránið.

„Ég fyrirgef þér fyrir það sem hefur gerst en það breytir ekki tilfinningunum, áfallinu og hve mikið líf mitt breyttist,“ sagði Kardashian eftir að hafa fengið afsökunarbeiðni í bréfi frá Khedache.

„Ég trúi að allir eigi skilið annað tækifæri,“ bætti raunveruleikastjarnan við. Sjálf lauk hún nýlega prófi í lögfræði eftir sex ára nám.

Skrifaði bók um ránið

Annar sakborningur í málinu, maður að nafni Yunice Abbas, skrifaði bók um ránið sem hann titlaði Ég rændi Kim Kardashian.

Í bókinni lýsir hann hvernig bakpokinn hans festist í dekkinu á reiðhjólinu sem hann notaði til að flýja vettvang. Hann hefði þá dottið og í flýti komið þýfinu af götunni aftur í bakpokann.

Í réttarhöldunum í apríl sagðist hann sjá eftir að hafa tekið þátt í ráninu. Þetta tiltekna rán hefði verið „einu ráni of mikið“ og „opnað augu“ hans fyrir misgjörðum sínum.

Sex öryggisverðir heima hjá Kardashian

Kardashian sagði ránið hafa breytt sýn sinni á öryggismál. „Það breytti öryggistilfinningu minni heima hjá mér,“ sagði hún.

Eftir ránið hefði hún verið með allt að sex öryggisverði heima hjá sér öllum stundum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gleymdu því aldrei að árið framundan er besti tíminn sem þér hefur boðist til að bæta vinnuumhverfi þitt. Láttu aðra um sín mál og snúðu þér að öðru á meðan.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Lucinda Riley
3
Moa Herngren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gleymdu því aldrei að árið framundan er besti tíminn sem þér hefur boðist til að bæta vinnuumhverfi þitt. Láttu aðra um sín mál og snúðu þér að öðru á meðan.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Lucinda Riley
3
Moa Herngren