Stuttmyndin O (hringur) með Ingvar E. Sigurðssyni í aðalhlutverki hlaut um helgina Danzante verðlaunin, sem eru aðalverðlaun alþjóðlegu kvikmyndahátíðaðinnar í Huesca á Spáni. Verðlaun þessi valda því að nú er myndin komin í forval til Óskarsverðlaunanna 2026.
Rúnar Rúnarssonar er leikstjóri myndarinnar og framleiðandi er Heather Millard en í tilkynningum frá aðstandendum hennar kemur fram að um sé að ræða ljóðræna frásögn af manni sem vill standa sig en hans helsta hindrun er hann sjálfur.
Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í haust og hefur verið á ferðalagi um heiminn síðan. Eru þetta elleftu verðlaun myndarinnar og er hún einnig komin í forval Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2025.