Sitja enn á rökstólum í máli Diddy

Teikning af Sean Diddy Combs við réttarhöldin í New York.
Teikning af Sean Diddy Combs við réttarhöldin í New York. Skjáskot/Youtube

Kviðdómendur í máli bandaríska rapparans Sean Diddy Comps, sitja enn á rökstólum um hvort sýkna eða sakfella eigi Diddy fyrir fyrsta ákærulið í málinu er varðar hvort hann hafi gerst sekur um fjárdráttsstarfsemi. 

Kviðdómendunum tókst ekki að komast að sameiginlegri niðurstöðu um fyrsta ákæruliðinn í dag, en þau hafa komist að niðurstöðu í hinum fjórum liðunum er lúta að mansals- og vændisstarfsemi Diddys.

Dómari í málinu gaf kviðdómendum frest til morguns til að komast að niðurstöðu og er búist við að kviðdómendur skili endanlegri niðurstöðu sinni um alla ákæruliði þá. 

Að sögn álitsgjafa CNN er skiljanlegt að kviðdómendur eigi erfitt með að koma sér saman um fyrsta ákæruliðinn, en að hans sögn er sá liður afar lagalega flókinn, en til að sakfella Diddy fyrir fjárdrátt þurfa kviðdómendur að komast að sammælast um að hann og samsærismaður hans hafi framið ákveðinn brot innan tíu ára tímabils frá handtöku hans.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú skiptir öllu máli að finna réttu aðferðina til að ná viðunandi árangri. Sjálfstraust er allt sem til þarf. Þú getur allt sem þú tekur þér fyrir hendur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Eva Björg Ægisdóttir
3
Anna Rún Frímannsdóttir
4
Steindór Ívarsson
5
Yrsa Sigurðardóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú skiptir öllu máli að finna réttu aðferðina til að ná viðunandi árangri. Sjálfstraust er allt sem til þarf. Þú getur allt sem þú tekur þér fyrir hendur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Eva Björg Ægisdóttir
3
Anna Rún Frímannsdóttir
4
Steindór Ívarsson
5
Yrsa Sigurðardóttir