Írski leikarinn Colin Farrell fór fögrum orðum um mótleikkonu sína, áströlsku þokkadísina Margot Robbie, í viðtalsþættinum Late Night with Seth Meyers á þriðjudagskvöldið.
Farrell jós hrósi yfir Barbie-stjörnuna og viðurkenndi að hafa kolfallið fyrir henni um leið og hann hitti hana í eigin persónu.
Farrell og Robbie mættu saman í viðtalið og ræddu við spjallþáttastjórnandann um nýjustu kvikmynd sína, A Big Bold Beautiful Journey.
Farrell sagði meðal annars að allir sem hann hefði hitt í gegnum árin og unnið með Robbie hefðu lýst henni sem einstakri manneskju – og að það væri eitthvað sem heillaði hann mjög.
Robbie varð hálfvandræðaleg, roðnaði í kinnum og gantaðist með að hún yrði að greiða Farrell 20 bandaríkjadali fyrir fögru orðin.
Til þess að geta hjálpað öðrum þarftu fyrst að hafa öðlast frið með sjálfum þér. Farðu ekki of geyst heldur taktu eitt skref í einu og þá farnast þér vel.
Til þess að geta hjálpað öðrum þarftu fyrst að hafa öðlast frið með sjálfum þér. Farðu ekki of geyst heldur taktu eitt skref í einu og þá farnast þér vel.
