Féll í yfirlið á sviðinu

Lola Young var meðal gesta á MTV-verðlaunahátíðinni þann 7. september …
Lola Young var meðal gesta á MTV-verðlaunahátíðinni þann 7. september síðastliðinn. Ljósmynd/AFP

Enska söngkonan Lola Young, sem er hvað þekktust fyrir poppsmellinn Messy, féll í yfirlið skömmu eftir að hún steig á svið á tónlistarhátíðinni All Things Go Music í New York á laugardag.

Young var í miðjum flutningi á laginu Conceited þegar hún missti meðvitund og var flutt baksviðs þar sem hún fékk læknisaðstoð.

Um klukkustund síðar fullvissaði hún áhyggjufulla aðdáendur á Instagram: „Ég er í lagi núna. Takk fyrir allan stuðninginn.“

Daginn áður hafði Young aflýst öðrum tónleikum af persónulegum ástæðum.

Young, sem er 24 ára, hefur á undanförnum misserum tjáð sig opinskátt um baráttu sína við fíkn og sagði nýlega í viðtali við The Guardian að hún væri þakklát fyrir þann stuðning sem hún hefur fengið á þessari krefjandi vegferð.

View this post on Instagram

A post shared by Stan Blade (@stanstoks)

 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú getur átt von á spennu í samskiptum þínum og náins vinar. Láttu ekkert trufla þessa góðu ákvörðun sem þú hefur tekið
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Christina Lauren
2
Patricia Gibney
4
Unnur Lilja Aradóttir
5
Steindór Ívarsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú getur átt von á spennu í samskiptum þínum og náins vinar. Láttu ekkert trufla þessa góðu ákvörðun sem þú hefur tekið
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Christina Lauren
2
Patricia Gibney
4
Unnur Lilja Aradóttir
5
Steindór Ívarsson