Lopez og Affleck glæsileg á rauða dreglinum

Jennifer Lopez og Ben Affleck á frumsýningu kvikmyndarinnar Kiss of …
Jennifer Lopez og Ben Affleck á frumsýningu kvikmyndarinnar Kiss of the Spider Woman. Með þeim er leikarinn Tonatiuh Elizarraraz. Ljósmynd/Slaven Vlasic

Fyrrverandi Hollywood-hjónin Jennifer Lopez og Ben Affleck voru glæsileg þegar þau gengu rauða dregilinn á frumsýningu kvikmyndarinnar Kiss of the Spider Woman á mánudagskvöldið í New York.

Lopez fer með aðalhlutverkið í myndinni og er jafnframt einn af framleiðendum hennar, ásamt Affleck.

Þrátt fyrir að Lopez hafi sótt um skilnað frá Affleck í ágúst í fyrra eftir tveggja ára hjónaband virðist ekkert illt á milli þeirra. Þau stilltu sér upp saman fyrir ljósmyndara, töluðu saman og hlógu, og á einum tímapunkti sást Affleck hvísla einhverju að Lopez.

Lopez, sem er 56 ára, klæddist brúnum blómakjól með svörtu yfirlagi sem minnti á kónguló. Hún mætti á viðburðinn ásamt 17 ára tvíburunum sínum, Max og Emme, sem hún á með fyrrverandi eiginmanni sínum, Marc Anthony.

Í viðtali við Entertainment Tonight hrósaði Affleck fyrrverandi eiginkonu sinni og sagði hana „stórkostlega í myndinni“, sem leikstýrð er af Bill Condon. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem þau birtust opinberlega saman frá því að skilnaður þeirra gekk í gegn í janúar.

Affleck mætti til að mynda ekki á frumsýningu kvikmyndarinnar Unstoppable, sem frumsýnd var á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto í september í fyrra, en sú mynd var einmitt framleidd af Affleck og skartaði Lopez í aðalhlutverki.

Lopez og Affleck eiga langa sögu sundur og saman. Þau voru áður trúlofuð og ætluðu að gifta sig í september 2003 en hættu saman í byrjun árs 2004. Þau voru síðan vinir og byrjuðu aftur saman 17 árum síðar.

View this post on Instagram

A post shared by Jennifer Lopez (@jlo)

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ef þú ert að pæla hvað fólki finnst í alvöru um þig, þá finnur þú líklega nú þegar fyrir hugsunum þeirra. Samræður við maka þinn gætu leitt til þess að hann taki til hendinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Christina Lauren
3
Patricia Gibney
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ef þú ert að pæla hvað fólki finnst í alvöru um þig, þá finnur þú líklega nú þegar fyrir hugsunum þeirra. Samræður við maka þinn gætu leitt til þess að hann taki til hendinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Christina Lauren
3
Patricia Gibney