„Zelda“ virðist eldast aftur á bak

Glæsikvendi!
Glæsikvendi! Skjáskot/Instagram

Bandaríska leikkonan Beth Broderick, sem heitir réttu nafni Elizabeth Alice Broderick, hefur lítið breyst frá því hún fór með hlutverk nornarinnar Zeldu Spellman í unglingaþáttaröðinni Sabrina the Teenage Witch á árunum 1996 til 2002.

Broderick, sem er 66 ára gömul, virðist eldast eins og gott vín ef marka má mynd sem hún deildi með fylgjendum sínum á Instagram á þriðjudag. Á myndinni er leikkonan stórglæsileg í hvítu bikiníi og horfir tælandi augum í myndavélina.

„Orðrómurinn er sannur. Ég hef aftur verið að leika mér í lauginni!“ skrifaði Broderick við myndina, sem margir hafa skrifað athugasemdir við og hrósað unglegu útliti hennar.

Síðustu ár hefur Broderick aðallega farið með aukahlutverk í hinum ýmsu sjónvarpsþáttum, meðal annars Under the Dome og Criminal Minds, en hún hefur einnig leikið í nokkrum Hallmark-jólamyndum, þar á meðal Holiday Mismatch, þar sem hún lék á móti Caroline Rhea, sem margir muna eftir sem Hildu Spellman í Sabrina the Teenage Witch.

Beth Broderick ásamt Melissu Joan Hart og Caroline Rhea.
Beth Broderick ásamt Melissu Joan Hart og Caroline Rhea. Skjáskot/IMDb



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er þér léttir að komast að því að nú eru peningar og bjargir til staðar og því unnt að gera úrbætur á vinnustað. Vertu vakandi yfir breytingum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Christina Lauren
2
Patricia Gibney
4
Sandra B. Clausen
5
Steindór Ívarsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er þér léttir að komast að því að nú eru peningar og bjargir til staðar og því unnt að gera úrbætur á vinnustað. Vertu vakandi yfir breytingum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Christina Lauren
2
Patricia Gibney
4
Sandra B. Clausen
5
Steindór Ívarsson