67% vilja að Ísland hætti við ef Ísrael tekur þátt

Eurovision-keppnin verður haldin næsta vor.
Eurovision-keppnin verður haldin næsta vor. Samsett mynd

67% svarenda í skoðanakönnun Prósents finnst að Ísland ætti að hætta við að taka þátt í Eurovision á næsta ári ef Ísrael verður meðal þátttökuþjóða og 33% finnst það ekki.

Þetta kemur fram í tilkynningu en könnunin var framkvæmd 16. til 30. september.

Konur vilja marktækt frekar að Ísland hætti við að taka þátt í Eurovision á næsta ári ef Ísrael verður meðal þátttökuþjóða en karlar. Þau sem búa á landsbyggðinni vilja marktækt frekar að Ísland hætti við þátttöku heldur en þau sem búa á höfuðborgarsvæðinu, segir í niðurstöðum könnunarinnar.

Enginn marktækur munur er á afstöðu eftir aldri.

2.000 manns voru í úrtakinu og var svarhlutfallið 50%.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur auga fyrir verðmæti og safnið þitt er meira virði en þig grunar. Spáðu í það að rómantíkin þarfnast bæði svigrúms og umönnunar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Christina Lauren
5
Patricia Gibney
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur auga fyrir verðmæti og safnið þitt er meira virði en þig grunar. Spáðu í það að rómantíkin þarfnast bæði svigrúms og umönnunar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Christina Lauren
5
Patricia Gibney