Smáþvengur með gerviskapahárum kominn á markað

Kim Kardashian er æði ánægð með nýja þvenginn í vörulínu …
Kim Kardashian er æði ánægð með nýja þvenginn í vörulínu SKIMS. Samsett mynd/Instagram/SKIMS

Vörumerki Kim Kardashian, SKIMS, hefur sett nýja flík á markað – ef flík skal kalla – en það er smáþvengur með gerviskapahárum að framanverðu. „Teppið þarf ekki að passa við gluggatjöldin.“

Nærbrækurnar eru sagðar ein umdeildasta vara fyrirtækisins hingað til. Þær fást í rauðu, beinhvítu og brúnu, með gervihárum að framan sem annað hvort eru krulluð eða slétt og í mismunandi litum.

„Hversu sniðugar eru þessar,“ sagði Kardashian í Instagram-sögu sinni í gær um leið og hún flíkaði brókunum í myndavélina. „Við erum með mismunandi liti, mismunandi hár. Þetta er brjálað. Skims, elskan.“

Kim Kardashian sýndi fjölbreytileika þvengsins í Instagram-sögu sinni.
Kim Kardashian sýndi fjölbreytileika þvengsins í Instagram-sögu sinni. Skjáskot/Instagram

Þess má geta að brækurnar eru uppseldar.

Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem SKIMS setur furðulega vöru á markað en í júlí kynnti vörumerkið andlitsumbúðir, svipaðar þeim sem fólk fær eftir lýtaaðgerð og á að virka sem eins konar kjálkastuðningur. Svo má ekki gleyma að minnast á brjóstahaldara með geirvörtum, aðhaldsbuxur með rassapúðum o.s.frv.

E News

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það reynir á þig í samstarfi við vinnufélagana. Ekki gera veður út af hlutunum það gerir bara illt verra. Það líta ekki allir sömu augum á málið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Christina Lauren
2
Patricia Gibney
3
Sandra B. Clausen
4
Steindór Ívarsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það reynir á þig í samstarfi við vinnufélagana. Ekki gera veður út af hlutunum það gerir bara illt verra. Það líta ekki allir sömu augum á málið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Christina Lauren
2
Patricia Gibney
3
Sandra B. Clausen
4
Steindór Ívarsson