Fjölskylda óskarsverðalaunakonunnar Diane Keaton hefur upplýst um dánarorsök leikkonunnar sem lést á laugardaginn, 79 ára að aldri.
Samkvæmt skriflegri yfirlýsingu til bandaríska fjölmiðlafyrirtækisins People lést Keaton úr lungnabólgu.
„Fjölskylda Keaton er innilega þakklát fyrir þann ótrúlega stuðning og kærleika sem hún hefur fengið undanfarna daga vegna ástkærrar Diane, sem lést úr lungnabólgu 11. október,“ segir í yfirlýsingunni.
Keaton, sem var lengi ein skærasta stjarnan í Hollywood, hlaut Óskarsverðlaun árið 1977 sem besta leikkona í aðalhlutverki fyrir leik sinn í kvikmyndinni Annie Hall sem þáverandi kærasti hennar og mótleikari, Woody Allen, leikstýrði. Myndin var að miklu leyti byggð á ævi hennar sjálfrar.
Þá hlaut hún einnig Óskarstilnefningar fyrir hlutverk í myndunum Reds, Marvin's room og Something's gotta give.
Ef þú ert að pæla hvað fólki finnst í alvöru um þig, þá finnur þú líklega nú þegar fyrir hugsunum þeirra. Samræður við maka þinn gætu leitt til þess að hann taki til hendinni.
Ef þú ert að pæla hvað fólki finnst í alvöru um þig, þá finnur þú líklega nú þegar fyrir hugsunum þeirra. Samræður við maka þinn gætu leitt til þess að hann taki til hendinni.
