Móðir í fyrsta sinn 44 ára

Stúlknasveitin Atomic Kitten er best þekkt fyrir lagasmellinn Whole Again.
Stúlknasveitin Atomic Kitten er best þekkt fyrir lagasmellinn Whole Again. Samsett mynd

Enska söngkonan Liz McClarnon, sem er best þekkt sem meðlimur stúlknasveitarinnar Atomic Kitten, og eiginmaður hennar, Peter Cho, hafa eignast sitt fyrsta barn.

McClarnon, sem er 44 ára, greindi frá gleðitíðindunum í story á Instagram-síðu sinni á sunnudag.

„Litli karlinn kom í heiminn aðeins of snemma. Þótt þetta hafi byrjað dálítið ógnvænlega fór allt vel að lokum,“ skrifaði söngkonan.

McClarnon og Cho eignuðust son eftir langa baráttu við ófrjósemi.

Söngkonan greindi frá óléttunni á Instagram-síðu sinni í maí og birti þá fallegt myndskeið þar sem hún situr á garðbekk, stendur svo upp og sýnir myndarlega óléttukúlu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt auðvelt með að gera málamiðlanir í vinnunni í dag. Ef munurinn er umtalsverður veistu hvað þú átt að velja, og ef hann er lítill skiptir ekki máli hvað þú ákveður.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Christina Lauren
2
Patricia Gibney
4
Unnur Lilja Aradóttir
5
Steindór Ívarsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt auðvelt með að gera málamiðlanir í vinnunni í dag. Ef munurinn er umtalsverður veistu hvað þú átt að velja, og ef hann er lítill skiptir ekki máli hvað þú ákveður.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Christina Lauren
2
Patricia Gibney
4
Unnur Lilja Aradóttir
5
Steindór Ívarsson