Diane Ladd látin

Síðustu hlutverk Ladd voru í kvikmyndunum Gigi & Nate og …
Síðustu hlutverk Ladd voru í kvikmyndunum Gigi & Nate og Isle of Hope, sem báðar komu út árið 2022. Skjáskot/IMDb

Bandaríska leikkonan Diane Ladd er látin, 89 ára að aldri. Hún lést á heimili sínu í Ojai í Kaliforníu á mánudag, að sögn dóttur hennar, leikkonunnar Lauru Dern.

„Mín magnaða hetja og dýrmæta gjöf í lífi mínu, móðir mín, kvaddi í morgun með mig sér við hlið á heimili sínu í Ojai í Kaliforníu,“ sagði dóttir hennar, Óskarsverðlaunahafinn Laura Dern, í yfirlýsingu til The Hollywood Reporter. „Hún var besta dóttir, móðir, amma, leikkona, listamaður og samúðarfull sál sem aðeins draumar gætu skapað. Við vorum lánsöm að hafa hana. Hún flýgur nú með englum sínum.“

Ladd hlaut þrjár Óskarstilnefningar fyrir hlutverk sín í Alice Doesn’t Live Here Anymore (1974), Wild at Heart (1990) og Rambling Rose (1991).

Hún var gift leikaranum Bruce Dern á árunum 1960 til 1969 og áttu þau tvær dætur, Lauru og Diane Elizabeth, sem lést ung í slysi. Síðar giftist Ladd viðskiptamanninum William Shea Jr. en þau skildu árið 1976 eftir sjö ára hjónaband.

Ladd átti langan og farsælan feril í kvikmyndum, sjónvarpi og á sviði og var af mörgum talin ein af fremstu karakterleikkonum Bandaríkjanna.

View this post on Instagram

A post shared by Variety (@variety)

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt auðvelt með að gera málamiðlanir í vinnunni í dag. Ef munurinn er umtalsverður veistu hvað þú átt að velja, og ef hann er lítill skiptir ekki máli hvað þú ákveður.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Christina Lauren
2
Patricia Gibney
4
Unnur Lilja Aradóttir
5
Steindór Ívarsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt auðvelt með að gera málamiðlanir í vinnunni í dag. Ef munurinn er umtalsverður veistu hvað þú átt að velja, og ef hann er lítill skiptir ekki máli hvað þú ákveður.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Christina Lauren
2
Patricia Gibney
4
Unnur Lilja Aradóttir
5
Steindór Ívarsson