Enski leikarinn Jonathan Bailey hefur verið útnefndur kynþokkafyllsti maður heims árið 2025 af tímaritinu People. Bailey fylgir í fótspor stjarna á borð við Paul Rudd, George Clooney, Brad Pitt, Idris Elba og Michael B. Jordan.
Bailey, sem er 37 ára, skaust upp á stjörnuhimininn í Netflix-þáttaröðinni Bridgerton, þar sem hann fer með hlutverk Lord Anthony Bridgerton. Hann leikur einnig Prince Fiyero í Wicked-kvikmyndunum.
Blaðamaður People spurði leikarann hvað hann hugsaði þegar hann heyrði að hann hefði hlotið titilinn kynþokkafyllsti maður heims.
„Það er mikill heiður. Augljóslega er ég mjög hrærður og mér þykir þetta jafnframt algjörlega fáránlegt,“ sagði Bailey. „Þetta hefur verið leyndarmál, svo ég er ansi spenntur að sjá viðbrögð vina og fjölskyldu þegar þeir komast að þessu.“
Þú átt auðvelt með að gera málamiðlanir í vinnunni í dag. Ef munurinn er umtalsverður veistu hvað þú átt að velja, og ef hann er lítill skiptir ekki máli hvað þú ákveður.
Þú átt auðvelt með að gera málamiðlanir í vinnunni í dag. Ef munurinn er umtalsverður veistu hvað þú átt að velja, og ef hann er lítill skiptir ekki máli hvað þú ákveður.
