Borgarleikhúsið

Borgarleikhúsið

[ Heimasíða | 568 8000 ]
Opnunartímar miðasölu Borgarleikhússins:
Virkir dagar 12-18
Sýningardagar 12-20
Helgar 12-20
Sími miðasölu er 568 8000

Tvískinnungur

Tvískinnungur

Iron Man og Svarta ekkjan hittast í partýi; eru þau óvinir eða elskendur, eru þau ókunnug eða hafa þau þekkst í þúsund ár? Tvískinnungur er einvígi þar sem tveir leikarar takast á við tvísaga fortíð. Þau stíga inn í hringinn vopnuð tungumáli sem særir og tælir, heillar, meiðir, strýkur, svíkur, rífur upp og rífur niður - í leit að raunverulegum leikslokum.

Undir hálfrímuðum texta slamm-skáldsins Jóns Magnúsar Arnarssonar kraumar ólgandi fíknikvika, tilfinningar og ástríður, þráhyggja, órar og líka spurningin um hver þú ert þegar þú ert ekki þú sjálfur.

Til baka