Orðaskak á Brit-hátíð

Tom Jones var verðlaunaður á Brit hátíðinni í gærkvöldi.
Tom Jones var verðlaunaður á Brit hátíðinni í gærkvöldi. AP

Ýmislegt gekk á þegar Brit-verðlaunin, bresku tónlistarverðlaunin voru veitt í gærkvöldi en þar voru söngvararnir Robbie Williams og Macy Gray sigurvegarar. Þau fengu tvenn verðlaun hvort og skoska rokksveitin Travis sömuleiðis.

Eftirminnilegustu augnablikin voru þó þegar Williams skoraði á Liam Gallagher söngvara Osasis í slag og Ronnie Wood gítarleikari Rolling Stones lenti í rifrildi við plötusnúð á sviðinu. Williams fékk verðlaun fyrir bestu smáskífuna og besta myndbandið en lagið var í báðum tilfellum She's The One. Þegar hann tók við verðlaununum manaði hann Gallagher, sem var í Japan á tónleikaferð, í slag og lagði 100 þúsund pund undir. Var Williams þarna að hefna sín á Gallagher sem lét svo um mælt fyrir skömmu að Williams væri bara feitur dansari. Þá varð nokkuð líflegt á sviðinu þegar Ron Wood og leikkonan Thora Birch áttu að veita ein verðlaunin. Plötusnúðurinn Brandon Block ruddist þá upp á sviðið og gerði at í þeim. Lauk viðskiptum þeirra með því að Wood hellti úr glasi yfir hann og þeir Woods og Block létu fúkyrðin fjúka á meðan öryggisverðir drógu Block af sviðinu. Í viðtali á BBC 1 á eftir tvinnaði Wood síðan saman blótsyrði um Block. Macy Gray var valin besta söngkonan og besti nýliðinn. Kryddstúlkurnar fengu sérstök verðlaun fyrir framlag sitt til breskrar dægurtónlistar og sungu eitt lag. Geri Halliwell, sem hætti í hljómsveitinni fyrir tveimur árum, var ekki í hópnum en hún söng ein lag af nýrri plötu sinni. Gamla brýnið Tom Jones var valinn besti karllistamaðurinn en Beth Orton vann þann titil í kvennaflokki.
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson