Sænskir námsmenn reyna að komast í frí

Sænskir námsmenn sjá sér nú leik á borði, þegar bæjarstarfsmenn eru í verkfalli, og reyna að stífla klósett og kasta frá sér rusli á gólf skólabygginga til að reyna að fá skólunum lokað svo þeir komist í frí.

Húsverðir og umsjónarmenn skóla eru meðal þeirra 47 þúsund bæjarstarfsmanna sem lögðu niður vinnu í 60 bæjum og borgum í Svíþjóð í gær.

Anders Sjoedahl, aðstoðarskólastjóri í Fagrabäck grunnskólanum í Växjö í Svíþjóð, segir við AP fréttastofuna, að ástandið sé þegar orðið mjög erfitt þar sem nemendur hafi reynt að stífla salerni og vaska og rusla til.

Til þessa hefur enginn skóli þó neyðst til að loka en skólaárinu lýkur í júní.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson