„Trjámaðurinn" á batavegi

Indónesíumaðurinn Dede, sem nefndur hefur verið „trjámaðurinn frá Jövu" á Indónesíu, þjáist af sjaldgæfum húðsjúkdómi.  Flestir sem fá sjúkdóminn fá litlar vörtur en hjá Dede lýsir hann sér í mikilli vörtumyndun um allan líkamann sem afmyndaði útlimina þannig, að hendur og fætur mannsins líktust trjágreinum.

Dede missti vinnuna vegna þess hvernig komið var fyrir honum og eiginkonan yfirgaf hann.  Bandarískur læknir, sem sá heimildarmynd um Dede, þóttist vita hvernig mætti meðhöndla hann og hafði samband við indónesíska starfsbræður sína.

Dede hefur síðan gengist undir vítamínmeðferð og aðgerðir. Hann getur nú matast án aðstoðar og skrifað en þarf líklega að fara í 3-4 aðgerðir í viðbót til þess að fjarlægja vörturnar.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant