Markvörður svindlar

Mörkin á Íslandi eru alltaf nógu stór.
Mörkin á Íslandi eru alltaf nógu stór.

Daninn Kim Christensen, sem er í markinu hjá sænska knattspyrnuliðinu IFK Göteborg, á nú á hættu leikbann eftir að í ljós kom að hann hefur reynt að svindla með óvenjulegum hætti. Hann sást sparka í markstangirnar til að reyna að gera markið minna.

Christensen hélt að sögn Jyllandsposten markinu hreinu í 13 leikjum á tímabilinu og átti það sinn þátt í að liðið er efst í sinni deild. En sl. miðvikudag sást til hans á sjónvarpsupptökum þar sem hann reyndi að minnka markið. Og reyndi ekki að leyna svindlinu.

„Á sumum völlum eru stangirnar ekki vel fastar og þá reynir maður að hnika þeim til um eins marga sentimetra og maður getur,“ segir Christensen í samtali við Aftonbladet í Svíþjóð. Hann segist hafa fengið þetta ráð hjá félaga sínum fyrir nokkrum árum. kjon@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler