Maður án fóta ekki nógu fatlaður

Hannah var neitað um að leggja í fatlaðrastæði vegna þess …
Hannah var neitað um að leggja í fatlaðrastæði vegna þess að hann þótti ekki nógu fatlaður. mbl.is/Eyþór

Tom Hannah, 73 ára eldri borgari frá Skotlandi, sem þurfti að láta fjarlægja báða fætur, má ekki leggja í fatlaðastæði vegna þess að hann þykir ekki nægilega fatlaður.

Hannah fór í tvær aðgerðir á síðasta ári til þess að fjarlægja neðsta part fótanna vegna vandamála í blóðrásinni.

Hannah fékk gervilimi í stað fótanna og styðst við hækjur. Eftir aðgerðirnar var honum gefið tímabundinn passi til þess að leggja í fatlaðastæði. Þegar Hannah ætlaði að endurnýja passann var honum sagt að hann væri ekki nógu fatlaður til þess að leggja í fatlaðastæði vegna þess að hann getur gengið tæplega 20 metra að sjálfdáðum.

Hannah er mjög ósáttur við borgarráð í Fife og segir sig eiga mjög erfitt með gang og flesta hreyfingu.

Borgarráðið hefur boðið Hannah að koma í rannsókn þar sem lagt verður mat á hreyfigetu hans til þess til þess að leysa málið.

Frétt Mirror

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant