Lægsta tilboðið 320 milljónir

Suðurnesjalína 2 | 22. október 2015

Lægsta tilboðið 320 milljónir

Sjö tilboð bárust í gerð vegslóðar, jarðvinnu og undirstöður vegna byggingar Suðurnesjalínu 2, 220 kílóvolta háspennulínu frá Hraunhellu í Hafnarfirði að Rauðamel norðan Svartsengis.

Lægsta tilboðið 320 milljónir

Suðurnesjalína 2 | 22. október 2015

Suðurnesjalína 2 er 220 kílóvolta háspennulínu frá Hraunhellu í Hafnarfirði …
Suðurnesjalína 2 er 220 kílóvolta háspennulínu frá Hraunhellu í Hafnarfirði að Rauðamel norðan Svartsengis. mynd/Landsnet

Sjö tilboð bárust í gerð vegslóðar, jarðvinnu og undirstöður vegna byggingar Suðurnesjalínu 2, 220 kílóvolta háspennulínu frá Hraunhellu í Hafnarfirði að Rauðamel norðan Svartsengis.

Sjö tilboð bárust í gerð vegslóðar, jarðvinnu og undirstöður vegna byggingar Suðurnesjalínu 2, 220 kílóvolta háspennulínu frá Hraunhellu í Hafnarfirði að Rauðamel norðan Svartsengis.

Kostnaðaráætlun verksins hljóðar upp á tæplega 390 milljónir króna. Íslenskir aðalverktakar eiga lægsta boðið, sem hljóðar upp á 320 milljónir króna.

Verkið felur í sér gerð nýrrar vegslóðar með línunni að hluta til, gerð hliðarslóða og vinnuplana við möstur, jarðvinnu vegna undirstaða og stagfesta ásamt efnisútvegun og framleiðslu undirstaða og stagfesta. Verkinu skal að fullu lokið fyrir septemberlok 2016 en línuleiðin er rúmir 32 kílómetrar og möstrin verða 100 talsins, að því er segir á vef Landsnets.

Útboðið var auglýst í september og voru tilboðin sjö sem bárust í verkið opnuð á skrifstofu Landsnets sl. þriðjudag.

Nánar hér.

mbl.is