Laufey aðstoðar dómsmálaráðherra

Alþingiskosningar 2016 | 18. janúar 2017

Laufey aðstoðar dómsmálaráðherra

Laufey Rún Ketilsdóttir lögfræðingur hefur verið ráðin aðstoðarmaður Sigríðar Á. Andersen, dómsmálaráðherra. Laufey Rún hefur þegar hafið störf. Hún starfaði áður sem blaðamaður á Morgunblaðinu.

Laufey aðstoðar dómsmálaráðherra

Alþingiskosningar 2016 | 18. janúar 2017

Laufey Rún Ketilsdóttir, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra.
Laufey Rún Ketilsdóttir, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra.

Laufey Rún Ketilsdóttir lögfræðingur hefur verið ráðin aðstoðarmaður Sigríðar Á. Andersen, dómsmálaráðherra. Laufey Rún hefur þegar hafið störf. Hún starfaði áður sem blaðamaður á Morgunblaðinu.

Laufey Rún Ketilsdóttir lögfræðingur hefur verið ráðin aðstoðarmaður Sigríðar Á. Andersen, dómsmálaráðherra. Laufey Rún hefur þegar hafið störf. Hún starfaði áður sem blaðamaður á Morgunblaðinu.

Laufey Rún er fædd 18. júní 1987 í Reykjavík. Hún er lögfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands (BA) og Háskólanum í Reykjavík (MA). Þá lauk hún stúdentsprófi af hagfræðibraut Verzlunarskóla Íslands, að því er segir í tilkynningu á vef innanríkisráðuneytisins.

Laufey Rún hefur starfað sem blaðamaður á Morgunblaðinu frá árinu 2014 en vann þar áður hjá Juris lögmannsstofu, Gjaldskilum innheimtuþjónustu, regluvörslu Arion banka og í viðskiptaumsjón Kaupþings.

Laufey Rún er formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna og situr í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. Þá var hún framkvæmdastjóri SUS árið 2015 og hefur setið í stjórn sambandsins frá 2010. Laufey sat áður í stjórn Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Á námsárum sat Laufey í ritnefnd Úlfljóts, tímarits laganema.

mbl.is