Hafna niðurstöðu SÞ

Rohingjar á flótta | 29. ágúst 2018

Hafna niðurstöðu SÞ

Stjórnvöld í Búrma hafna niðurstöðu rannsóknar nefndar á vegum Sameinuðu þjóðanna um að aðgerðir hersins gagnvart rohingjum séu þjóðarmorð. Skýrslan var kynnt fyrr í vikunni og eru þetta fyrstu viðbrögð stjórnvalda við henni.

Talsmaður stjórnvalda í Búrma, Zaw Htay, segir að stjórnvöld hafi ekki heimilað rannsóknarnefndinni (UN Fact-Finding Mission) að koma til landsins og þess vegna samþykki yfirvöld ekki eða taki undir ályktanir mannréttindaráðsins.

Rann­saka þarf æðstu ráðamenn búrmiska hers­ins vegna þjóðarmorðs í Rak­hine-héraði og fyr­ir glæpi gegn mann­kyn­inu á öðrum svæðum. Þetta er niðurstaða nýrr­ar skýrslu Sam­einuðu þjóðanna, sem bygg­ir á hundruðum viðtala og er harðasta for­dæm­ing sam­tak­anna á of­beld­inu gegn rohingj­um til þessa.

Eru aðgerðir hers­ins sagðar í „stöðugu og veru­legu ósam­ræmi við raun­veru­lega ör­ygg­is­ógn“, að því er seg­ir í skýrsl­unni. Þar eru sex hátt sett­ir yf­ir­menn í búrmiska hern­um nefnd­ir á nafn og sagt að rétta ætti yfir þeim. Þá er skýrsl­an einnig veru­lega gagn­rýn­in í garð Aung San Suu Kyi, leiðtoga Búrma, fyr­ir að stöðva ekki of­beldið.

Face­book lokaði á æðstu ráðamenn búrmiska hers­ins vegna mann­rétt­inda­brota þeirra í kjölfar birtingar skýrslunnar á mánudag.

Mjög er þrýst á stjórnvöld í Búrma vegna aðgerða hersins sem hröktu yfir 700 þúsund rohingja úr landi og yfir til nágrannaríkisins Bangladess.

Á fundi öryggisráðs SÞ í gær hvöttu fulltrúar nokkurra ríkja, þar á meðal Bandaríkjanna, til þess að herforingjar í búrmíska hernum yrðu látnir sæta ábyrgð og dregnir fyrir alþjóðlegan dómstól.

mbl.is