Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður vekur gjarnan athygli fyrir skjólstæðinga sína. Undir skikkjunni leynist þó afar fágaður fatastíll en Vilhjálmur er mikill smekkmaður eins og sást vel á frakkanum sem hann klæddist í Landsrétti í morgun.

Þeir sem þekkja til Vilhjálms vita að honum finnst gaman að klæða sig í fín og vönduð föt. Er hann sérstaklega mikill áhugamaður um merkjavörur.
Hann er til dæmis duglegur að birta myndir af sér á samfélagsmiðlum í fötum frá Gucci, Fendi og Versace. Merkjavörur eins og þessar eru ekki ókeypis og kostar ein Gucci-peysa eins og sú sem Vilhjálmur á 1.850 pund í vefverslun Gucci eða hátt í 300 þúsund íslenskar krónur.
Þegar Vilhjálmur er ekki í spariskónum í vinnunni sést hann í hvítum strigaskóm frá Balanciaga. Sumir segja að skórnir séu lúxusútgáfa af gömlu góðu Buffalo-skónum og eru allir skór merktir með skónúmerinu framan á skónum. Eru skór Vilhjálms númer 41. Hægt er að kaupa þá á vefversluninni MyTheresa og kostar parið 630 evrur eða um 85 þúsund íslenskar krónur.