Framkvæmdir hefjast á næstunni

Varnarmál Íslands | 25. mars 2019

Framkvæmdir hefjast á næstunni

Reiknað er með að framkvæmdir á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli hefjist á næstunni í kjölfar þess að útboði vegna þeirra lauk á síðasta ári. Gert er ráð fyrir að framkvæmdirnar taki um tvö ár. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Þar segir að um fyrstu framkvæmdir á vegum bandarískra stjórnvalda á Íslandi sé að ræða á sviði varnarmála frá brottför varnarliðsins 2006.

Framkvæmdir hefjast á næstunni

Varnarmál Íslands | 25. mars 2019

Bandarísk P-8 Poseidon-kafbátaleitarvél.
Bandarísk P-8 Poseidon-kafbátaleitarvél. Ljósmynd/Bandaríski sjóherinn

Reiknað er með að framkvæmdir á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli hefjist á næstunni í kjölfar þess að útboði vegna þeirra lauk á síðasta ári. Gert er ráð fyrir að framkvæmdirnar taki um tvö ár. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Þar segir að um fyrstu framkvæmdir á vegum bandarískra stjórnvalda á Íslandi sé að ræða á sviði varnarmála frá brottför varnarliðsins 2006.

Reiknað er með að framkvæmdir á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli hefjist á næstunni í kjölfar þess að útboði vegna þeirra lauk á síðasta ári. Gert er ráð fyrir að framkvæmdirnar taki um tvö ár. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Þar segir að um fyrstu framkvæmdir á vegum bandarískra stjórnvalda á Íslandi sé að ræða á sviði varnarmála frá brottför varnarliðsins 2006.

Fram kemur enn fremur í fréttatilkynningunni að undir lok síðasta árs hafi verið undirritaðir verksamningar milli bandaríska sjóhersins og bandaríska verktakans Rizzani DE Eccher um tvenns konar framkvæmdir á öryggissvæðinu. Annars vegar sé um að ræða viðhald og breytingar á flugskýli 831 á Keflavíkurflugvelli og hins vegar byggingu þvottastöðvar fyrir flugvélar við flugskýlið.

„Framkvæmdunum er ætlað að bæta aðstöðuna fyrir kafbátaeftirlitsflugvélar Atlantshafsbandalagsþjóðanna. Þá hefur verið undirritaður verksamningur milli bandaríska sjóhersins og ÍAV um viðhald og endurbætur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Heildarfjárhæð verksamninganna þriggja er 25.250.000 Bandaríkjadalir eða rétt tæpir þrír milljarðar króna. Bandaríska varnarmálaráðuneytið stendur straum af kostnaði við framkvæmdirnar.“

Helstu verkþættir sem snúi að viðhaldi og breytingum á flugskýli 831 séu breytingar á hurðarbúnaði, eldvarnarkerfum og styrking á gólfi þannig að hægt verði að taka inn í skýlið kafbátaeftirlitsflugvélar af gerðinni P-8 Poseidon. Í tengslum við þvottastöðina þurfi að setja upp frárennsliskerfi og hreinsunarbúnað.

„Samanlagt tilboð Rizzani DE Eccher í þessi tvö verkefni hljóðar upp á 13.750.000 Bandaríkjadali, um 1,6 milljarða króna. Viðhaldsverkefni ÍAV á öryggissvæðinu taka til endurbóta á flugvélastæðum, akstursbrautum flugvéla og ljósakerfum fyrir flugvélastæði og akstursbrautir flugvéla. Áætlaður kostnaður er 11.500.000 Bandaríkjadalir, jafnvirði tæpra 1,4 milljarða króna.“

mbl.is