Trump við Pútín: Ekki skipta þér af

Vladimír Pútín | 28. júní 2019

Trump við Pútín: Ekki skipta þér af

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sló á létta strengi, að því er virðist, á blaðamannafundi í Osaka í morgun þegar hann sagði við Vladimír Pútín Rússlandsforseta að skipta sér ekki af forsetakosningunum í Bandaríkjunum á næsta ári.

Forsetatíð Trump hefur alla tíð einkennst af mögulegum afskiptum Rússa af forsetakosningunum 2016 en Robert Mu­ell­er, sér­stak­ur sak­sókn­ari í Banda­ríkj­un­um, seg­ir í rann­sókn­ar­skýrslu sinni sem op­in­beruð var í apríl að hann hafi ekki getað ályktað að Trump sé sak­laus af ásök­un­um um að hafa hindrað fram­gang rétt­vís­inn­ar. 

Trump og Pútín áttu stuttan fund í morgun en þeir eru báðir viðstaddir fund G20-ríkjanna, stærstu iðnríkja heims, sem hófst í Osaka í Japan í morgun. 

Á fundinum ber hæst viðskiptadeilur Bandaríkjanna við ýmis ríki sem og ólgu í samskiptum Bandaríkjanna og Írans. Umhverfis- og loftslagsmál verða einnig fyrirferðamikil á fundinum, sem lýkur á morgun. 

Trump er ekki sá eini sem bað Pútín um að hætta afskiptum af erlendum stjórnmálum en Theresa May, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands, ræddi við Pútín í morgun og sagði að eðlilegum samskiptum verði ekki komið á milli ríkjanna nema Rússar hætti öllum sínum tilraunum til að hafa áhrif á stjórnmál í Bretlandi. 

mbl.is