Austasti hluti Reynisfjöru áfram lokaður

Reynisfjara | 23. ágúst 2019

Austasti hluti Reynisfjöru verður áfram lokaður þar sem enn er hætta á berghruni úr suðurhlíð Reynisfjalls. Þetta var ákveðið á fundi fulltrúa frá lögreglunni á Suðurlandi, rekstraraðilum í Svörtu-Fjöru, hluta landeigenda í Reynisfjöru, sveitarstjóra Mýrdalshrepps og fulltrúum Veðurstofunnar og Vegagerðarinnar.

Reynisfjara hefur verið lokuð síðan á þriðjudag þegar stór skriða …
Reynisfjara hefur verið lokuð síðan á þriðjudag þegar stór skriða féll í fjöruna úr Reyn­is­fjalli. mbl.is/Hallur Már

Austasti hluti Reynisfjöru verður áfram lokaður þar sem enn er hætta á berghruni úr suðurhlíð Reynisfjalls. Þetta var ákveðið á fundi fulltrúa frá lögreglunni á Suðurlandi, rekstraraðilum í Svörtu-Fjöru, hluta landeigenda í Reynisfjöru, sveitarstjóra Mýrdalshrepps og fulltrúum Veðurstofunnar og Vegagerðarinnar.

Austasti hluti Reynisfjöru verður áfram lokaður þar sem enn er hætta á berghruni úr suðurhlíð Reynisfjalls. Þetta var ákveðið á fundi fulltrúa frá lögreglunni á Suðurlandi, rekstraraðilum í Svörtu-Fjöru, hluta landeigenda í Reynisfjöru, sveitarstjóra Mýrdalshrepps og fulltrúum Veðurstofunnar og Vegagerðarinnar.

Fjaran hefur verið lokuð síðan á þriðjudag þegar stór skriða féll í Reynisfjöru úr Reyn­is­fjalli. 

Svæðið verður áfram vaktað og lokunarborðum komið upp, en lögreglan hefur þurft að setja upp nýja borða daglega þar sem sjórinn eyðileggur hluta borðanna á næturna. Þá verður farið í vinnu við uppfærslu og samræmingu aðvörunarskilta sem standa við göngustíginn sem liggur niður í fjöruna. 

Samkvæmt gögnum frá Veðurstofu Íslands er enn þá hætta á berghruni úr suðurhlið Reynisfjalls. 

Fyrir fundinn var von­ast til að tek­in yrði ákvörðun um end­an­lega ráðstöf­un um merk­ingu svæðis­ins. Það gekk ekki eftir en unnið verður að útfærslu á frekari lausn á lokun á þessum hluta fjörunnar, að því er fram kemur í tilkynningu á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi. 

mbl.is