18 ára úr Kópavogi og komin til Nepals

Á ferðalagi | 24. september 2019

18 ára úr Kópavogi og komin til Nepals

Svala Davíðsdóttir sem er 18 ára Kópavogsmær hefur dvalið síðustu þrjár vikur í SOS barnaþorpinu í Jorpati í Katmandú, höfuðborg Nepal. Hún er búsett hjá bróður sínum í borginni og á daginn vinnur hún sem kennari í sjálfboðaliðastarfi í barnaþorpinu. Þar búa fötluð börn sem eitt sinn voru umkomulaus en eiga nú ástríka SOS-fjölskyldu og heimili.

18 ára úr Kópavogi og komin til Nepals

Á ferðalagi | 24. september 2019

Svala Davíðsdóttir dvelur í Nepal um þessar mundir.

„Starf mitt felst í aðstoð í kennslustofunni. Við erum fimm kennarar með 14 börn. Krakkarnir eru í skóla alla daga frá kl. 10-16 nema laugardaga. Þau læra að lesa og skrifa auk þess sem þau læra landafræði, vísindi, ensku, stærðfræði og á tölvur,“ segir Svala sem leyfir Íslendingum að fylgjast með sér í Nepal á Instagram síðu SOS barnaþorpanna á Íslandi. 

„Hér búa eingöngu börn sem þurfa á sérstakri aðstoð að halda vegna fötlunar. Í þorpinu eru 6 hús og búa 8 börn í hverju og SOS-mamma. Það er dásamlegt að sjá hve vel er hugsað um börnin. Þau búa í fallegu húsnæði, lifa fjölskyldulífi og fá tækifæri til að mennta sig.“

Eitt barn í þorpinu á styrktarforeldri á Íslandi og tveir Íslendingar eru SOS-barnaþorpsvinir Jorpati þorpsins. Styrktarforeldrar taka þátt í framfærslu barnsins og fá reglulega af því fréttir og myndir. Barnaþorpsvinir taka þátt í rekstrarkostnaði þorpsins.

Svala verður næstu mánuðina í Katmandú og mun líka starfa í SOS-barnaþorpinu í Sanothimi. Hún mun einnig sinna fimleikakennslu en hún hefur æft fimleika hjá Gerplu í 14 ár og séð þar um þjálfun barna.

„Mig hefur lengi dreymt um að fá tækifæri til að sinna hjálparstarfi. Ég er svo þakklát fyrir tækifærið að fá að vinna með börnunum í SOS-barnaþorpunum.“

mbl.is