Transmaður fær ekki að vera faðir

Réttindabarátta hinsegin fólks | 25. september 2019

Transmaður fær ekki að vera faðir

Breskur transmaður sem fæddi barn eftir frjósemismeðferð fær ekki að vera skráður faðir barns síns samkvæmt æðsta fjölskyldudómstól Breta. 

Transmaður fær ekki að vera faðir

Réttindabarátta hinsegin fólks | 25. september 2019

Í dómnum má finna fyrstu bresku lagalegu skilgreiningu orðsins móður.
Í dómnum má finna fyrstu bresku lagalegu skilgreiningu orðsins móður. Ljósmynd/Luma Pimentel

Breskur transmaður sem fæddi barn eftir frjósemismeðferð fær ekki að vera skráður faðir barns síns samkvæmt æðsta fjölskyldudómstól Breta. 

Breskur transmaður sem fæddi barn eftir frjósemismeðferð fær ekki að vera skráður faðir barns síns samkvæmt æðsta fjölskyldudómstól Breta. 

Í dómnum má finna fyrstu bresku lagalegu skilgreiningu orðsins móður, en samkvæmt honum snýst móðurhlutverkið um meðgöngu og að fæða barn og skiptir þar ekki máli hvort aðilinn sem gekk með og fæddi barnið sé kona eða karl samkvæmt lögum.

Freddy McConnell er 32 ára og hefur lifað sem karlmaður í nokkur ár en hélt kvenkyns æxlunarfærum sínum og fæddi barn sitt árið 2018. 

Hann ákvað að höfða mál gegn stjórnvöldum eftir að að þess var krafist að hann yrði skráður móðir barnsins á fæðingarvottorði þess þrátt fyrir að hann framvísaði löglegum skilríkjum sem sýndu að hann væri karlmaður.

Dómurinn þykir bakslag í réttindabaráttu transfólks.

Umfjöllun Guardian

mbl.is