Konur tilnefndar í flokki bókmennta

Norðurlandaráðsþing 2019 | 29. október 2019

Konur tilnefndar í flokki bókmennta

„Tilnefning til menningarverðlauna Norðurlandaráðs er mikill heiður og við Íslendingar erum stolt af listafólkinu okkar. Það er ánægjulegt að sjá viðurkenningu á því öfluga menningarstarfi sem blómstrar hér á landi og á hinum Norðurlöndunum.“ Þetta er haft eftir Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, sem verður viðstödd þegar menningarverðlaun Norðurlandaráðs verða afhent í kvöld í Svíþjóð í tilkynningu.

Greint verður frá því hverjir hreppa verðlaunin í kvöld.
Greint verður frá því hverjir hreppa verðlaunin í kvöld. Ljósmynd/norden.org

„Tilnefning til menningarverðlauna Norðurlandaráðs er mikill heiður og við Íslendingar erum stolt af listafólkinu okkar. Það er ánægjulegt að sjá viðurkenningu á því öfluga menningarstarfi sem blómstrar hér á landi og á hinum Norðurlöndunum.“ Þetta er haft eftir Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, sem verður viðstödd þegar menningarverðlaun Norðurlandaráðs verða afhent í kvöld í Svíþjóð í tilkynningu.

„Tilnefning til menningarverðlauna Norðurlandaráðs er mikill heiður og við Íslendingar erum stolt af listafólkinu okkar. Það er ánægjulegt að sjá viðurkenningu á því öfluga menningarstarfi sem blómstrar hér á landi og á hinum Norðurlöndunum.“ Þetta er haft eftir Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, sem verður viðstödd þegar menningarverðlaun Norðurlandaráðs verða afhent í kvöld í Svíþjóð í tilkynningu.

Íslenskar tilnefningar til verðlaunanna eru að þessu sinni:

Barnabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs: Ragnheiður Eyjólfsdóttir fyrir skáldsöguna Rotturnar og Sigrún Eldjárn fyrir skáldsöguna Silfurlykillinn.

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs: Kristín Ómarsdóttir fyrir ljóðabókina Kóngulær í sýningagluggum og Kristín Eiríksdóttir fyrir skáldsöguna Elín, ýmislegt.

Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs: Gyða Valtýsdóttir tónskáld og Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari.

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs: Hvítur, hvítur dagur í leikstjórn Hlyns Pálmasonar.

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs.  Fatamerkið AFTUR.

Verðlaunin verða afhent í kvöld kl. 18:30. 

Í fyrra hlutu tveir Íslendingar þessi eftirsóttu verðlaun; Auður Ava Ólafsdóttir fyrir skáldsögu sína Ör og Benedikt Erlingsson fyrir kvikmyndina Kona fer í stríð

Bókmenntaverðlaunin eru elst af verðlaununum fimm en þau voru veitt í fyrsta sinn árið 1962. Fimm dómnefndir sjá um að tilnefna verk og útnefna verðlaunahafana. Verðlaun Norðurlandaráðs verða veitt í tengslum við 71. þing Norðurlandaráðs í Stokkhólmi þar sem þingmenn, forsætisráðherrar og fleiri ráðherrar auk leiðtoga stjórnarandstöðu frá öllum Norðurlöndunum koma saman og ræða stjórnmál og stefnumótun. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

mbl.is